21. fundur
fjárlaganefndar á 154. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 21. nóvember 2023 kl. 11:35


Mætt:

Stefán Vagn Stefánsson (SVS) formaður, kl. 11:35
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF) 1. varaformaður, kl. 11:35
Eyjólfur Ármannsson (EÁ) 2. varaformaður, kl. 11:35
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 11:35
Jódís Skúladóttir (JSkúl), kl. 11:35
Jóhann Friðrik Friðriksson (JFF), kl. 11:35
Kristrún Frostadóttir (KFrost), kl. 11:35
Teitur Björn Einarsson (TBE), kl. 11:35
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 11:35
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (ÞorbG), kl. 11:35

Nefndarritarar:
Ólafur Elfar Sigurðsson

Bókað:

1) 1. mál - fjárlög 2024 Kl. 09:35
Til fundarins komu Björn Þór Hermannsson, Jón Viðar Pálmason, Sigurður Páll Ólafsson, Hrafn Hlynsson, Kristinn Bjarnason, Sólrún Halldóra Þrastardóttir, Marta Guðrún Skúladóttir, Katrín Anna Guðmundsdóttir, Hlynur Hreinsson og Óttar Snædal Þorsteinsson frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Lagt var fram bréf frá fjármála- og efnahagsráðherra dags. 21. nóvember 2023 þar sem fjármála- og efnahagsráðherra, fyrir hönd ríkisstjórnar Íslands, fer þess á leit við fjárlaganefnd Alþingis að við 2. umræðu frumvarps til fjárlaga ársins 2024 verði gerðar þær breytingar á tekjuáætlun ríkissjóðs, fjárheimildum A1-hluta ríkissjóðs ásamt 5. og 6. gr. fjárlaga sem fram koma í yfirlitum sem fylgja bréfinu. Þau eru yfirlit sem sýnir sundurliðun á gjaldahlið frumvarpsins eftir málefnasviðum. Minnisblað um breytingar á 5. og 6. gr. Endurmetin tekjuáætlun ríkissjóðs og minnisblað um tillögur að breytingum við 2. umræðu. Einnig var lagt fram kynningarefni á breytingatillögunum. Gestirnir kynntu tillögur ríkisstjórnarinnar og svöruðu spurningum nefndarmanna um þær.

2) Önnur mál Kl. 13:43
Rætt var um þá vinnu sem framundan er. Fleira var ekki gert.

3) Fundargerð Kl. 13:49
Fundargerð 20. fundar var samþykkt.

Fundi slitið kl. 13:50